Mennta- og menningarmálaráðuneytið gengst fyrir ráðstefnunni Landsbyggð tækifæranna - Þekkingar- og fræðastarf á landsbyggðinni sem haldin verður mánudaginn 23. maí kl. 13:00-17:00. Ráðstefnan verður haldin í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.
Á ráðstefnunni verður fjallað um mikilvægi og tækifæri þekkingar- og fræðastarfs á landsbyggðinni og tengsl þess við rannsókna- og háskólasamfélagið á höfuðborgarsvæðinu. Meðal viðfangsefna ráðstefnunnarr er að skýra umfang og fjölbreytileika í starfsemi þekkingarsetra víða um land með áherslu á þau tækifæri sem þar liggja. Aukið samstarf bæði svæðisbundið og á landsvísu er líklegt til að skila auknum tækifærum til svæðisbundinnar þróunar á Íslandi.
Á ráðstefnunni verða 10 stuttir fyrirlestrar og umræður.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið postur@mrn.is
Dagskrá
13:00 Setning - Guðrún Norðdal, formaður vísindanefndar Vísinda-og tækniráðs.
13:10 Fjölbreytni vísinda og þekkingarstarfs á landsbyggðinni - Þórarinn Sólmundarson, mennta-og menningarmálaráðneytis
13:20 Þekkingarsetur sem samnefnari - Valdimar O.Hermannson, Sambandi sveitafélaga á Austurlandi.
13:30 Náttúrustofur - samstarf og sérkenni -Sveinn Kári Valdimarsson, Nátturustofu Reykjaness.
13:40 Umræður
14:15 Náttúra,samfélag, verðmætasköpun - Jarðvangur á Suðurlandi - Sigurður Sigursveinsson, Háskólafélagi Suðurlands.
14:25 Samþætting akademíu og atvinnulífs Óli Hálldórsson, þekkingarsetri Þingeyinga
14:35 Menntun í þágu samfélagsins Anna Guðrún Edvardsdóttir, Rannsóknarsetri Háskóla Íslands Austurlandi
14:45 Kaffihlé og umræður
15:20 Úrvinnsla umræðna
15:50 Innviðir þekkingarstarfs á Íslandi – samþætting skólastiga - Sigurbjörg Jóhannesdóttir, mennta- og menningarmálaráðuneyti.
16:00 Háskólar og þekkingarsetur - Jón Atli Benediktsson, Háskóla Íslands.
16:10 Þekkingarsetur og Ísland 2020 - Héðinn Unnsteinsson, forsætisráðuneyti.
16:20 Samantekt og almennar umræður
16:40 Lokaorð - Hjalti Þór Vignisson, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar